Leiksýningin Róðarí hefur fengið góðar móttökur og því hefur verið bætt við einni aukasýningu, en sú verður sú síðasta á leikritinu að þessu sinni.

Sýningin verður í Tjarnarbíói laugardaginn 8. nóvember, kl. 20:00.

Um verkið

Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum.

Systkinin telja sig öll hafa fundið sér stað í tilverunni óháð hvert öðru. Stóra spurningin er hver eigi að axla ábyrgð á málum fjölskyldunnar þegar á reynir.

Átökin sem eiga sér stað á sviðinu snúast um mannúð og samstöðu gegn sérhyggju og eigingirni. Í þeirri glímu fara draugar fortíðarinnar á kreik og þar hefur hver sinn djöful að draga.

Fjórar af þekktustu leikkonum okkar stíga á svið í Róðaríi eftir nokkurt hlé frá leikhúsinu en auk þeirra leikur einn karlleikari af yngri kynslóð í verkinu.

Leikritið er eftir Hrund Ólafsdóttur og Erling Jóhannesson leikstýrir.

Leikarar eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Halldóra Björnsdóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson og Margrét Guðmundsdóttir.