Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem áætlað er að verði fjölskyldusýningin Kardemommubærinn.
Æfingatímabil verður u.þ.b. frá miðjum september fram í byrjun nóvember.
Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 28. ágúst nk.