Þrátt fyrir óvissu vegna Covid, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefir verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið  boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid hefur komið í veg fyrir valið síðastliðin tvö ár en að óbreyttu er stefnt á að velja sýningu á vori komanda. Að þessu sinni verður hægt að sækja um fyrir sýningar sem frumsýndar voru leikárin 2020-21 og 2021-22 fram til loka umsóknarfrests sem er 20. apríl 2022. Sótt er um á Leiklistarvefnum. Dómnefnd á vegum Þjóðleikhússins mun velja þá sýningu sem nefndin telur sérstaklega athyglinnar virði og verður valið samkvæmt venju tilkynnt á aðalfundi BÍL í byrjun maí.

Umsóknarform fyrir AÁÁ2022 er tiltækt þegar félag skráir sig inn á vefinn.