Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016–2017 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu.
Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með því að senda póst á info@leiklist.is. Útprentað og gormað kostar ritið 4.000 kr.
Pantanir þurfa að hafa borist fyrir 23. október nk.