Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar geti kynnt sér hvað er að gerast í áhugaleikhúsinu.
Leikfélög og einstaklingar geta þó pantað útprent ef það er gert fyrir mánudaginn 3. desember, Kostnaður er þá 2.000 kr. fyrir útprentið og ef þið viljið fá þetta gormað inn þá kostar það 1.500 kr. til viðbótar. Hægt er að panta það á info@leiklist.is.