Sýning Leikfélags Kópavogs á Gutta og félögum hefur gengið fádæma vel og uppselt á hverja einustu sýningu. Nú eru þó síðustu forvöð að sjá prakkkarann Gutta og félaga hans því allrasíðasta sýning verður sunnudaginn 21. apríl kl. 14.00. 

Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Nánari upplýsingar á www.kopleik.is.

Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Auk Gutta eru aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var rausnarkerling, Pennastokkur læknir og fleiri koma einnig við sögu í verkinu. Stefán Jónsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar og sögur hans og ljóð hafa lifað með okkur um áratugaskeið. Sögurnar um Hjalta litla auk ljóða hans og vísna um Gutta, Ara og fleiri minnisstæða karaktera eiga ríkan hljómgrunn meðal landsmanna. Um Stefán hefur verið sagt: „Hann leitaðist við að segja börnum sögur sem gerðu þau að þenkjandi manneskjum og að sama skapi höfða til barnsins í þeim“

Gutti og félagar henta sérstaklega börnum á aldrinum 4-104 ára. Miðaverð gerir fjölskyldunni kleift að koma saman á sýninguna án þess að stórsjái á buddunni því miðinn kostar því aðeins 1.200 kr. Hægt er að kaupa miða á www.midakaup.is/kopleik en einnig er hægt að senda miðapöntun á midasala@kopleik.is .