Leiklistarskóli BÍL 2022
Leiklistarskóli BÍL verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði dagana 18. - 26. júní í sumar. Að þessu sinni verður boðið upp á 3 námskeið; Leiklist I, kennari Ólafur Ásgeirsson, Leikstjórn II, kennari Jenný Lára Arnþórsdóttir og Sérnámskeið fyrir leikara...
Þjónustumiðstöð lokuð 28. janúar
Þjónustumiðstöðin og Leikhúsbúðin verða lokuð föstudaginn 28. janúar. Þó er hægt að hafa samband í síma eða tölvupósti. Vefverslunin er að sjálfsögðu alltaf opin....
Ferðamaður deyr
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 22. janúar nýtt gamanleikrit eftir höfundasmiðju leikfélagsins í leikstjórn Ólafs Þórðarsonar. Í kjallara í Reykjavík er hópur fólks í miðjum klíðum að standsetja íbúð fyrir útleigu til ferðamanna. Af óviðráðanlegum ástæðum neyðast þau skyndilega til...
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2022
Þrátt fyrir óvissu vegna Covid, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefir verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur...
Lífsins leikur – hlaðvarp um leiklistina í landinu
Leikhópurinn Leikfjelagið sem Arnfinnur Daníelsson og Halldóra Harðardóttir standa að, hefur hleypt af stokkunum hlaðvarpinu Lífsins leik. Í fyrsta þætti ræddu þau við formann og framkvæmdastjóra BÍL, þau Guðfinnu Gunnarsdóttur og Hörð Sigurðarson um þessi rúmlega 70 ára samtök...
Jólakveðja frá Bandalaginu 2021
Bandalag íslenskra leikfélaga óskar aðildarfélögum, félagsmönnum, vinum og velunnurum gleðilegra jóla. Lokað verður á Þjónustumiðstöð frá og með 23. desember. Opnum aftur 4. janúar 2022. Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er altaf opin. Sendingar gætu þó dregist um 1-2...
Leikhúsmál – nýtt hlaðvarp
Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur komið á koppinn nýju hlaðvarpi um leiklist og leikhús. Hlaðvarpið nefnist Leikhúsmál og er nafn þáttarins nefnt eftir samnefndu tímariti er leikarinn Haraldur Björnsson gaf út um miðja síðustu öld. Umsjónarmaður Leikhúsmála er Elfar Logi...
Hugleikur í hryllilegum leik
Um síðustu helgi sýndi Leikfélagið Hugleikur stuttverkadagskrána Hrollleikur, þar sem frumsýnd voru 5 stuttverk eftir höfunda félagsins. Þema dagskrárinnar var hrollur og hryllingur í ýmsum myndum og reyndust verkin sem af þessu þema spruttu afskaplega fjölbreytt – en um...
Í fylgd með fullorðnum – áheyrnarprufur
Í fylgd með fullorðnum er nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson sem Leikfélag Hörgdæla mun frumsýna í mars á næsta ári. Áheyrnarprufur verða haldnar á Melum í Hörgárdal sunnudaginn 5.desember milli 10 og 14. Leitað er eftir leikurum á öllum...
Ronja ræningjadóttir á Króknum
Leikfélag Sauðárkóks frumsýnir sunnudaginn 14. nóvember, barnaleikritið Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur. Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki . „Ronja er eitt af mörgum frábæru leikverkum Astridar en hefur kannski ekki náð alveg sama flugi...


