Lokað á Þjónustumiðstöð BÍL mán. 13. mars
Þjónustumiðstöð BÍL verður lokuð mánudaginn 13. mars. Erindum send á info@leiklist.is verður svarað fljótt og vel . Vefverslunin er opin eins og...
Meira eldgos í Halanum
Halaleikhópurinn fékk góðan gest á sýningu á Obbosí, eldgos um helgina. Sjálfur Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson kom á sýningu og skemmti sér, ja ef ekki konunglega þá a.m.k. forsetalega. Ákveðið hefur verið að bæta við sýningu vegna góðrar...
Lokað á Þjónustumiðstöð vegna rafmagnsvinnu 28. febrúar
Lokað verður á Þjónustumiðstöð BÍL þriðjudag 28. febrúar kl. 9.00-13.00 þar sem Veitur munu loka fyrir rafmagn í húsinu vegna vinnu við jarðstreng. Opið verður kl. 13.00-16.00. Hægt er þó að hafa samband í síma 551-6974 og netfangið info@leiklist.is....
Himinn og jörð í Húnaþingi
Leikflokkur Húnaþings vestra ætlar um komandi páska að setja upp söngleikinn Himinn og jörð í Félagsheimilinu Hvammstanga. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en á hann einnig heiðurinn að handritinu sem samið var sérstaklega fyrir leikflokkinn í kringum 17 lög Gunnars Þórðarsonar. ...
Vitleysingar á svið
Nú styttist óðum í frumsýningu leikfélags Ungmennafélags Gnúpverja 2023 á leikritinu ,,Vitleysingarnir” sem er fjörugt, fyndið og krassandi stykki eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Haukur er þjóðinni að góðu kunnur fyrir sínar fjölmörgu skáldsögur, ljóðabækur og smásögur en einnig mörg...
Dýrin í Hálsaskógi í Mosfellsbæ
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi hið sívinsæla leikrit Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner í lok janúar. Sýnt verður fram í apríl. Dýrin í Hálsaskógi er sennilega vinsælasta barnaleikrit allra tíma á Íslandi og íslensk börn hafa kynnst lífinu í skóginum...
Gauragangur í Reykjadal
Leikdeild Eflingar frumsýndi söngleikinn góðkunna Gauragang, eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Jennýjar Láru Arnórsdóttur og tónlistarstjórn Péturs Ingólfssonar. Tónlistin í verkinu er eftir meðlimi í Nýdönsk. Leikritið er sýnt í félagsheimilinu Breiðumýri í Reykjadal og er það sett...
Leiklistarskóli BÍL 2023
Leiklistarskóli BÍL verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði dagana 17. - 25. júní í sumar. Að þessu sinni verður boðið upp á 3 námskeið; Leiklist II, kennari Árni Pétur Guðjónsson, Leikstjórn III, kennari Jenný Lára Arnþórsdóttir og Sérnámskeið fyrir...
Einn fyrir alla og allir fyrir einn á Húsavík
Leikfélag Húsavíkur æfir verkið Ávaxtakörfuna um þessar mundir. Verkið er eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og tónlistin er samin af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni. Margir þekkja Ávaxtakörfuna þar sem aðeins ávextir mega búa en þó leyfist einu litlu jarðarberi að dvelja...
Leikfélag VMA sýnir hurðafarsann Bót og betrun
Leikfélag VMA frumsýnir Bót og betrun eftir Michael Cooney fös. 3. febrúar. Verkið er sprenghlægilegur hurðafarsi um svindl, svik og pretti í félagslega kerfinu. Aðalpersóna verksins er Erik Swan sem eftir að hafa verið sagt upp í vinnunni, grípur til þess ráðs...


