Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn fimmtudaginn 26. maí kl. 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins kynnt og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Leikfélag Ölfuss var stofnað haustið 2005 og hefur síðan þá sett upp 6 stórar sýningar auk þess sem félagið hefur tekið þátt í fjölmörgum uppákomum og smærri verkefnum. Félagið hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og virkum félögum fjölgað jafnt og þétt. Góður andi og áhugasemi einkenna þennan félagsskap og markmiðið er alltaf að skemmta sjálfum sér og öðrum.
Allir velkomnir á aðalfund.
{mos_fb_discuss:3}