Aðalfundur Leikfélags Selfoss 2021 verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf, m.a. stjórnarkjör og inntaka nýrra félaga.  Aðalfundir L.S. eru heimilislegir og í flesta staði léttir og skemmtilegir. Allir eru velkomnir.

Sérstaklega er vakin athygli á því að nýir félagar geta gengið formlega í félagið á aðalfundi. Einnig er vakin athygli áhugasamra á því að skuldlausir félagar geta boðið sig fram í stjórn og varastjórn á aðalfundi (nýjir félagar líka). Auk þess er fundarmönnum frjálst að leggja erindi og fyrirspurnir fyrir fundinn í liðnum önnur mál.

Tillögur til laga- eða skipuritsbreytinga má leggja fyrir aðalfund, en þær þurfa að berast til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund í ár, skriflega eða í tölvupósti.

Lög og skipurit félagsins má sjá á heimasíðu leikfélagsins, leikfelagselfoss.is undir liðnum “Um félagið”. Þar má einnig finna fundargerð aðalfundar 2020.

Að lokum er minnt á Facebooksíðu Leikfélag Selfoss, vef félagsins á leikfelagselfoss.is og netfangið leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is þar sem hægt að skrá sig á póstlista og fá ýmsar tilkynningar um starf félagsins auk þess að spyrja nánar út í aðalfundinn.