Aðalfundur Leikfélags Selfoss 2022 verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 20:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf, m.a. stjórnarkjör og inntaka nýrra félaga. Aðalfundir félagsins eru heimilislegir, léttir og skemmtilegir. Allir eru velkomnir.
Sérstaklega er vakin athygli á því að nýir félagar geta gengið formlega í félagið á aðalfundi. Einnig er vakin athygli áhugasamra á því að skuldlausir félagar geta boðið sig fram í stjórn og varastjórn á aðalfundi (nýir félagar líka). Auk þess er fundarmönnum frjálst að leggja erindi og fyrirspurnir fyrir fundinn í liðnum önnur mál.
Tillögur til laga- eða skipuritsbreytinga má leggja fyrir aðalfund, en þær þurfa að berast til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund í ár, skriflega eða í tölvupósti.
Lög og skipurit félagsins má sjá á heimasíðu leikfélagsins, leikfelagselfoss.is undir liðnum “Um félagið”. Þar má einnig finna fundargerð aðalfundar 2021.
Að lokum minnum við á facebooksíðuna Leikfélag Selfoss, heimasíðuna leikfelagselfoss.is og tölvupóstinn leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is þar sem hægt að skrá sig á póstlista og fá ýmsar tilkynningar um starf félagsins auk þess að spyrja nánar út í aðalfundinn.
Kær kveðja,
Stjórn Leikfélags Selfoss