Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00

Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins. 

Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. Við fylgjumst með íslenskum konum í gufubaði í fjarlægu landi þar sem hryðjuverk vofir yfir, systkinum sem hittast í íbúð í Reykjavík eftir margra ára fjarvistir til að útkljá myrkaverk úr fortíðinni, strák og stelpu sem hittast í grímupartýi í Reykjavík með óvæntum afleiðingum og tveimur nágrannakonum sem eiga í óvæntum en ofsafengnum samskiptum út af ketti.

Auglýst var eftir verkum í vinnslu og bárust alls 36 umsóknir. Af þeim voru fjögur verk valin til að verða unnin áfram undir handleiðslu listræns ráðunautar Borgarleikhússins. Haldin var vinnuvika með skáldunum ásamt völdum leikstjórum og leikurum Borgarleikhússins.

EFNISSKRÁ:
Sjö konur myrtar í gufubaði eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
Rauðir þræðir eftir Jóhann Þórsson í leikstjórn Vigdísar Jakobsdóttur
Gestir eftir Hildi Knútsdóttur í leikstjórn Viðars Eggertssonar
Tvískinnungur eftir Jón Magnús Arnarsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar

 Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.