Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi er Örn Árnason og leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson
Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið segir frá ungu fólki sem er að glíma við ástina, verða ástfangið, hætta að vera ástfangið og að verða ástfangið af þeim sem þau mega ekki vera ástfangin af. Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið. Hann hefur aldrei séð hana fyrr. Hver er þessi kona? Hvað gerðist kvöldið áður? Hann flækist inní atburðarás sem hann ræður ekkert við, brúðurin á leiðinni, herbergið í rúst, nakin kona í rúminu og þá er bankað …
Frumsýning sunnudaginn 24. apríl klukkan 20
2. sýning þriðjudaginn 26. apríl klukkan 20
3. sýning miðvikudaginn 27. apríl klukkan 20
4. sýning laugardaginn 30. apríl klukkan 15
5. sýning sunnudaginn 1. maí klukkan 20
6. sýning þriðjudaginn 3. maí klukkan 20
7. sýning miðvikudaginn 4. maí klukkan 20
8. sýning föstudaginn 6. maí klukkan 20
9. sýning laugardainn 7. maí klukkan 15
10. sýning sunnudaginn 8. maí klukkan 20
11. sýning miðvikudaginn 11. maí klukkan 20
12. sýning laugardaginn 14. maí klukkan 15
Lokasýning sunnudaginn 15. maí klukkanan 20
Almennt miðaverð kr 2800
Hópar,eldri borgarar og öryrkjar kr 2300
Miðasala í síma 8499434