Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Maríu Pálsdóttur.  Áætlað er að frumsýna 20.  febrúar ef allt gengur upp.

Leikarar eru rúmlega 20 og eru þeir á ýmsum aldri,  reyndir í bland við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu.

Mikka ref og Lilla klifurmús leika nú í þriðja sinn þeir Hjörtur Benediktsson og Steindór Gestsson sem sjást þarna í fullum skrúða á myndinni. Tuttugu og sex ár eru síðan þeir léku þessi hlutverk fyrst.

Guðmundur Eiríksson annast píanóleik. Aðrir sem að þessari vinnu koma eins og sviðsmynd, búningasaum, andlitsmálun og fleira eru hátt í 20 manns.

Þegar nær dregur verður hægt að fylgjast með gangi mála, bæði með myndum og í texta á facbókarsíðu Leikfélags Hveragerðis. Sýningardagar verða einnig auglýstir þar.