Valnefnd hefur lokið störfum og valið þau þrjú af sjö innsendum verkum sem notuð verða við 65 ára afmælisgjörning aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga vikuna 16.-22. nóvember.
Valnefndina skipuðu:
Ágúst Magnússon
Bernharð Arnarson
Gísli Björn Heimisson
Þráinn Sigvaldason
Ylfa Mist Hlegadóttir
Innsend verk og leyninöfn höfunda:
Afmælisveislan hans Dóra Skjöldur
Albatrossinn Fuglabaninn
Hjartaslagur Lilja
Afmælisveislan Dingulskott
Ljónynjurnar Eydís
Heimsfrægt afmæli Pardusinn
Afmælisgjörningur Nenni H
Verkin sem valin voru (í stafrófsröð) og rétt nöfn höfunda:
Afmælisveislan Oddfreyja Oddfreysdóttir
Albatrossinn Hilmir Arnarson
Heimsfrægt afmæli F. Elli Hafliðason
Stuttverkin voru send öllum aðildarfélögum í síðustu viku.
Aðildarfélögum Bandalagsins er hér með boðið að setja verkin upp eða leiklesa vikuna 16.-22. nóvember í þeim tilgangi að vekja athygli á 65 ára afmæli Bandalagsins. Ekki þarf að greiða höfundarlaun fyrir notkun verkanna þessa viku. Við vonumst til að sem flestir taki þátt með einum eða öðrum hætti.
Sendið okkur upplýsingar á info@leiklist.is um hvaða verk þið sýnið, hvar og hvenær. Við söfnum öllum þessum upplýsingum saman og auglýsum viðburðinn eins vel og okkur er unnt. Við þurfum að fá þessar upplýsingar í síðasta lagi 12. nóvember.