Hlutar úr leikritinu Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar verða sýndir 14. og 15. nóvember kl. 20. Í „Innlit í Stræti“ verða flutt eintöl nokkurra íbúa strætisins þar sem við fáum nasaþef af persónuflóru. Við hittum Skinnið sem er bulla með ofbeldisfulla fortíð en hefur nú snúist til dharma. Prófessorinn, misheppnaður rithöfundur, fjallar um bókina sem aldrei varð til. Þarna býr Valerie, einstæð móðir sem býr við kúgun og heimilisofbeldi og drýgir tekjurnar með betli. Þá birtist Mollý, drottningamóðir transgender heimsins og líf hennar í dag. Jerry, smámunasamur fyrrverandi hermaður sem dagaði uppi einhversstaðar kemur fram. Scullery er svo sögumaðurinn sem tengir alla þessa einstaklinga. Allt þetta fólk er að undirbúa sig til að fara á krána að skemmta sér. Orðfæri persónanna getur verið gróft og ekki fyrir viðkvæma.
4. og 5. desember kl 20 báða dagana mun svo Halaleikhópurinn sýna hluta úr verkinu sem verður ekki í aðalsýningunni í janúar. Það er sagan af Joey og Clark og fjallar um ást samkynhneigðra ungra manna, leit þeirra að lausn í hverfulum heimi og örlög þeirra.
Í lok janúar 2016 setur Halaleikhópurinn svo á svið leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Leikritið gerist á einu kvöldi á tímum kreppu og atvinnuleysis. Þetta kvöld kynnumst við íbúum við strætið og sögum þeirra. Fátækt, örlög og lífið sem speglast í þessum persónum á erfiðum tímum er sannfærandi átakasaga með kómísku ívafi.
Halaleikhópurinn er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra.
Sýningar verða að Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar á www.halaleikhopurinn.is
Takmarkaður sýningafjöldi.