Á morgun, fimmtudaginn 22. október, frumsýnir Menningarfélag Akureyrar glænýtt íslenskt verk í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og menningarhússins Hofs. Verkið ber titilinn Þetta er grin, án djóks og er eftir þau Halldór Laxness Halldórsson (Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur.

Um er að ræða sprenghlægilegt gamanverk þar sem þau Saga og Dóri leika sig sjálf… ef þau væru kærustupar. Verkið fjallar fyrst og síðast um húmor og velta þau mikið fyrir sér virði brandara. Hverju má gera grín að og hver má gera það? Þarf maður að sleppa því að segja alveg ógeðslega fyndinn brandara bara af því að hann er óviðeigandi? Í þessari rannskókn sinni leyfa þau að sér að ganga ansi langt í prófunum, svo langt að við getum lofað því að einhverjum áhorfendum mun blöskra eða blygðast sín.

Sem fyrr segir eru það þau Saga og Dóri sem fara með aðalhlutverk sýningarinnar en auk þeirra stígur Benedikt Karl Gröndal á svið og er hann í hlutverki ákaflega misheppnaðs umboðsmanns þeirra skötuhjúa. Þríeykið hefur fengið fjölda gesta á forsýningar í þessari viku og síðustu og hafa fliss, undrunaróp og hlátrasköll ómað um allt Hof. Það er því mikil tilhlökkun að bjóða gesti velkomna í sannkallaða frumsýningargleði.

Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir gríninu og þá fara betri helmingar þeirra Sögu og Dóra með mikilvægt hlutverk í sýningunni. Magnea Guðmundsdóttir, eiginkona Dóra, hannar leikmynd og búninga fyrir verkið og kærasti Sögu, tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, á hljóðmynd og útsetningar.

Verkið verður sýnt á föstudögum í stóra sal Hofs, Hamraborg og er óhætt að lofa góðri skemmtun.

Nánar um verkið :

Saga og Dóri eru uppistandarar og þau eru líka kærustupar. Þau elskast, rífast, semja brandara og eru ósammála um hvort betra sé að fara til New York eða á Hornstrandir til að rækta sambandið. Dóri og Saga eru kaldhæðin, upptekin af sjálfum sér og of mikið á netinu. Það er ekkert grín að vera einstaklingur í sjálfhverfu sambandi og í samkeppni við einu manneskjuna sem skilur mann. Það eina sem þau óttast er að segja óviðeigandi brandara og verða fyrir vikið jörðuð á öllum miðlum. En hvað er óviðeigandi brandari? Er grín ekki alltaf leikur á línunni? Og hversu óviðeigandi þarf mjög fyndinn brandari að vera til að maður sleppi honum? Er grín einhvern tímann ókeypis? Meira að segja fimm aura brandarar hafa verðmiða og hvað kostaði þá Grínverjinn?