Aukasýningar hefjast í Tjarnarbíói sunnudaginn 18. október, kl. 13:00 á Lífið – Stórskemmtilegt drullumall. Fyrsta aukasýning af fjórum.

Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin vann tvenn Grímuverðlaun á síðasta leikári, “Barnasýning ársins 2015” og “Sproti ársins 2015”!

Leiksýningin fjallar um sköpunarkraftinn, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold. Á einu plani er verið að búa til sögu um sköpun heimsins, hvernig landslag breytist í gegnum hamfarir og kraft náttúruafla, hvernig líf kviknar, hvernig fyrstu dýrin skriðu á land og goggunarröðina í náttúrunni – en á öðru plani má lesa úr þessari sömu leiksýningu einfalda sögu af tveimur krökkum að leik. Börnum sem uppgötva skugga sinn og sjálfa sig, finna mold í pokum og fara að drullumalla.

Leikhúsið 10 fingur, sem stendur að þessari sýningu, setti upp verðlaunasýninguna Skrímslið litla systir mín og hlaut einnig Grímuverðlaunin sem besta barnasýning ársins 2012.