Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu.
Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er skemmtileg blanda þjóðsagna og þjóðsagnapersóna úr hinum íslenska menningararfi. Sýningin er í raun fjögur stuttverk sem öll hafa verið sett upp hjá leikfélaginu síðustu ár en er nú skeytt saman í eina sýningu.
Verkin sem um ræðir eru Bakkabræður og Leitin að Stúfi eftir Don Ellione og Djákninn á Myrká eftir Guðný Láru Gunnarsdóttir og Stefán Örn Viðarsson en þau eru öll félagar í Leikfélagi Selfoss. Einnig er verkið Gilitrutt eftir Þórunni Guðmundsdóttur.
Leikfélag Selfoss mun sýna þrjár fjáröflunarsýningar á verkinu í Litla leikhúsinu við Sigtún til að safna í ferðasjóð fyrir utanlandsferðinni. Frumsýning verður 26. júní en einnig verður sýnt 27. júní og 2. júlí en sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Leikhópurinn lætur ekki þar við sitja enda mikið hæfileikafólk. Haldnir verða tveir fjáröflunartónleikar, þeir fyrri 27. júní í Litla leikhúsinu við Sigtún og þeir seinni á Café Rósenberg í Reykjavík 30. júní. Nánar er hægt að fræðast um sýninguna á fésbókarsíðunni Kjánar og kynlegir kvistir og á heimasíðu leikfélagsins, leikfelagselfoss.is.
Leiksýningar:
Frumsýning Föstudagur 26. Júní kl. 20:00 Litla leikhúsið við Sigtún
2. sýning Laugardagur 27. júní kl. 14:00 Litla leikhúsið við Sigtún
3. sýning Fimmtudagur 2. Júlí Kl. 20:00 Litla leikhúsið við Sigtún
Tónleikar:
Fyrri Laugardagur 27. júlí Kl. 21:00 Litla leikhúsinu við Sigtún
Seinni Þriðjudagur 30. júní Kl. 21:00 Café Rósenberg
Engar miðapantanir, bara að mæta. Miðaverða á leiksýningar er 1000 kr., miðaverða á tónleika er 1500 kr. Hægt er að fá afslátt, ein leiksýning og tónleikar fyrir 2000 kr. Svo er ekkert sem bannar að borga meira til að hjálpa félaginu enn frekar í fjáröfluninni.