Vefur vikunnar Hugleikur í Reykjavík fagnaði 20 ára afmæli þann 24. apríl og opnaði af því tilefni nýjan vef félagsins. Þar er að finna hafsjó af upplýsingum um starfsemi félagsins frá upphafi og þá einstaklinga sem að því hafa komið ásamt söngtextum úr leikritum og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. |
Vefur vikunnar – Leiklistarnám á vefnum Vefur vikunnar býður nám í leiklist á vefnum. Í námsskránni kennir ýmissa grasa.
Lítið á hana hér. |
Vefur vikunnar HotReview er bandarískur vefur helgaður leiklistargagnrýni og -umfjöllun. Þó hann sé nokkuð New-York-sentrískur er samt ýmislegt skarplegt skrifað þarna um ný leikrit, nýjar uppfærslur eldri verka og annað sem áhugamenn um leikhús nenna einir að lesa. Sjá vefinn hér. |
Vefur vikunnar – Playback Theatre Playback Theatre er nokkurskonar félagssálfræðilegt leikhús sem gengur í stuttu máli út á að leiknir eru atburðir úr lífi áhorfenda. Fyrirbrigðið er lítt þekkt hérlendis en þeir sem vilja fræðast meira um það geta litið á vefinn International Playback Theatre Network. |
Vefur vikunnar Í tilefni af sýningu Þjóðleikhússins á Ríkarði III eftir Shakespeare er vefur vikunnar helgaður þessum umdeilda kóngi. Eða nánar tiltekið félagsskap sem hefur það að markmiði að endurreisa mannorð hans, sem verk Shakespeares hefur átt stærstan þátt í að sverta síðastliðin fjögur hundruð ár. Vefur félagsins er efnisríkur mjög og þar er saga Rósastríðanna og Ríkarðs Plantagenet, hertoga af Glostri, rakin og leiðrétt. Lesið og sannfærist |
Vefur vikunnar The Playwright’s Cooperative er félagsskapur leikskálda sem bjóða verk sín á vefnum. Hægt er að skoða útdrátt úr verkunum og fá verkin send í tölvupósti á PDF formi. Smellið hér til að líta á úrvalið.
|
Vefur vikunnar ? Freyvangsleikhúsið Freyvangsleikhúsið heldur úti vefsíðu þar sem hægt er að kynna sér nýjustu fréttir af starfsemi þess og þar ber auðvitað hæst um þessar mundir sýningin á Káinn eftir prófast þeirra Eyfirðinga Hannes Örn Blandon. Endilega kíkið á þennan ágæta vef Freyvangsleikhússins. |
Vefur vikunnar Leikfélag Hólmavíkur heldur úti stórskemmtilegum vef þar sem hægt er að kynna sér allt það sem félagið hefur tekið sér fyrir hendur á undanförnum árum. Endilega kíkið á hann hérna. |
Vefur vikunnar bjargar jólaboðunum Jólin nálgast og með þeim hin uggvænlegu jólaboð með fjarskyldu ættingjunum sem þú sérð einu sinni á ári og veist aldrei hvað þú átt að tala um við. Vefur vikunnar leysir vandann með því að gera þig að Shakespearefræðingi á mettíma. Hvað svo sem gerist eru þessar löngu og óþægilegu þagnir úr sögunni. Annaðhvort geturðu ausið úr brunnum visku þinnar um Shakespeare fyrir Sigga frænda eða séð til þess að hann láti þig í friði. |
Vefur vikunnar Færst hefur í vöxt að íslenskt leikhúsáhugafólk bregði sér til Mekka leiklistarinnar í Lundúnum til að fara í leikhús. Þar er óendanlegt framboð af leiksýningum í öllum regnbogans litum. Vefur vikunnar getur verið gott hjálpartæki til að velja úr þeim aragrúa sýninga sem í boði eru.
|
Vefur vikunnar Vefur vikunnar færir þér allt sem þú vildir vita um kanadískt leikhús. Sjá Canadian Encyclopedia of Theatre . |
Kabuki fyrir byrjendur – Vefur vikunnar Kabuki er alþýðlegri armurinn af hefðbundnu japönsku leikhúsi. Hér er ágætur kynningarvefur um þessa sérstöku hefð. Þar má m.a. hlusta á tóndæmi úr Kabuki-hljóðfærum, fylgjast með Onnagata-leikara koma sér í kvengerfi, og hlusta á frammíköll æstra aðdáenda. |
Khirkyon ke bajne se khirkati hai khirkiyahTungubrjótar eru nauðsynleg hjálpartæki í vopnabúri hins metnaðargjarna leikara. Í hinu fjölmenningarlega nútímasamfélagi er engin ástæða til að einskorða sig við íslenska tungubrjóta, svo hér er að finna alþjóðlegt safn af þeim. |
Sirkusinn er kominn í bæinn!Hefur þú átt þér þann draum að stofna sirkus en ekki getað látið verða af því? Nú er ekki eftir neinu að bíða. Vefur vikunnar býður allt sem sannur sirkusmaður þarf. Lítið á www.unicycle.fr. |
Allt sem þú vildir vita um Henrik Ibsen……og rúmlega það. Afar ítarlegur og fróðlegur vefur um hið gagnmerka norska leikskáld. Fullt af greinum, upplýsingum, tilvitnunum og nýjustu fréttum af Ibsen (hann er víst ennþá dauður) og áhugafólki um hann má finna á vefnum www.ibsen.net/ |
Þetta er ungt og leikur sérÁ tímum æskudýrkunar er hollt að sjá gróskuna sem er í listalífi þeirra sem eldri eru. Vefur vikunnar fjallar um leiklist á forsendum eldri borgara. Leikhópar eldri borgara, leikrit, sýningar, markaðsmál og margt fleira frá sjónarhóli þessa hóps. Lítið á http://www.seniortheatre.com/
|
Vefur vikunnarÍ dag er fæðingardagur Shakespeares, og annars öllu lakari leikritahöfundar sem við tölum ekki um. Hér er stór og mikill Shakespearevefur fyrir áhugasama: http://shakespeare.palomar.edu/. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
… fyrir þá sem efast um þennan afmælisdag þá er hér samsæriskenning um aðShakespeare hafi ekki verið höfundur verka sinna: http://www.shakespeare-oxford.com/
|
Vefur vikunnarVefur vikunnar er fyrir hinar ósungnu hetjur leikhússins, ljósamenn, hljóðmenn og aðra þá er koma að tæknimálum í leikhúsi. Lítið á The Stage Technician’s Page. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Leikskáld.Leikskáldafélag Íslands rekur áhugaverðan vef um íslensk leikskáld og afurðir þeirra. Þar er t.d. hægt að skoða leikverk eftir höfundum. Lítið á þennan forvitnilega Vef vikunnar Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Söngleikir.Söngleikir eru eitt vinsælasta form leikhúss í dag. Vefur vikunnar geymir ókjör upplýsinga um flesta þekktustu söngleikina s.s. yfirlit söguþráðar, lagalista og margt fleira. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Leikrit á vefnum.Vefur vikunnar geymir leikrit af ýmsum toga.Þar er t.d. að finna verk Shakespeares og Sófóklesar auk verka eftir G. Bernard Shaw, Moliere, Ben Jonson og aðra meiri og minni spámenn. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Ég heiti Túrg. Drama Túrg.Vefur vikunnar fjallar um þær undarlegu persónur sem líða um leikhússali með yfirbragð æðri skilnings. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Grunntækni leikaransVefur vikunnar fjallar um grunntækni í vinnu leikarans s.s. upphitun, persónusköpun, sviðstækni og fleira. Góður vefur fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði og hina sem vilja fríska upp á grunninn. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Commedia dell’arteFlestir hafa heyrt minnst á Commedia dell’arte en þeir eru eflaust færri sem þekkja eitthvað til þessa dásamlega leikhúsforms sem m.a. hafði sterk áhrif á ekki minni mann en Charlie Chaplin. Vefur vikunnar getur leitt fólk í allan sannleika. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
Vefur vikunnar – Leiksýning í tölvunniVefur vikunnar býður þér að horfa á leiksýningar, óperur og sitthvað fleira á tölvuskjánum. Að vísu þarf að borga fyrir það og vissara að hafa þokkalega hraðvirka tengingu við Netið. Lítið á vefinn hér og skoðið hvað er í boði. Sjá einnig Fyrri vefi vikunnar
|
„Ljósin kvikna. Hvað gerist næst?“Vefur vikunnar er helgaður leikskáldinu góðkunna Harold Pinter. Afskaplega fjölbreyttur og áhugaverður vefur.
|
LeikhúshryllingurVefur vikunnar býður áhugasömum að kaupa grímur og farða af hryllilegra taginu. Lítið á Screamteam.
|
Með skáld í maganum?Um Vef vikunnar hefur verið sagt: "Sundurlaus, krókótt, kredduföst og algerlega ómissandi leiðsögn um alla þætti leikritunar…" Lítið á The Playwriting Seminars.
|
Vefur vikunnar – Búningar og búningasaumurÁ vef vikunnar er að finna ótalmargt er lýtur að búningum og búningagerð. Meðal annars er hægt að fara á vefnámskeið í búningasaum, skoða tísku mismunandi tímabila og jafnvel bjóða í flíkur á uppboði. Aðaláherslan virðist þó vera á "periódubúninga". Lítið á The Costume Gallery. |
Vefur vikunnar – Leikþættir fyrir konurOft er kvartað yfir skorti á leikþáttum fyrir konur. Vefur vikunnar inniheldur fjölda stuttra einleikja fyrir konur og það besta er að þá má nota að vild.
|
Vefur vikunnar – Hver er þessi grímuklæddi maður?Leikarar þurfa að kunna skil á ýmsu. Ef þú hreppir hlutverk Hamlets eða Zorro getur vefur vikunnar komið í góðar þarfir.
|
Vefur vikunnar – Mit sværd er væk, så jeg dør af skræk!Vefur vikunnar birtir hryllingssögur úr leikhúsinu, margar reyndar ansi fyndnar. Lítið á Theatrical Calamities.
|
Vefur mánaðarins – Keðjuleikrit á VefnumKeðjuleikrit breska Þjóðleikhússins verður sífellt skrítnara og skemmtilegra. Fylgist með daglega á http://www.nationaltheatre.org.uk/nt25/chainplay/ og svo er hægt að taka þátt í vangaveltum um stykkið og höfundana hér.
|