Laugardaginn 11. apríl frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikritið Ubba kóng – skrípaleik í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.

Ubbi kóngur (Ubu roi á frummálinu) er kannski betur þekktur sem Bubbi kóngur, en Herranótt frumflutti verkið hér á landi undir því nafni árið 1969 í leikstjórn Sveins Einarssonar.  Aðalhlutverk í þeirri uppfærslu voru leikin af Davíð Oddssyni og Signýju Pálsdóttur.

Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – er óhefðbundið og gráglettið ærslaverk fyrir fullorðna og er meginþema verksins græðgi, spilling og valdníð.

Leikritið var skrifað af Alfred Jarry undir lok 19. aldar og vakti heit viðbrögð þegar það var fyrst flutt í París árið 1896. Steingrímur Gautur Kristjánsson þýddi verkið upphaflega, en Leikfélag Hafnarfjarðar flytur það nú í nýrri og endurbættri þýðingu hans.

Á annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona hans, eru í höndum Halldórs Magnússonar og Huldar Óskarsdóttur. Tónlistin er frumsamin af Eyvindi Karlssyni fyrir sýninguna og söngtextar eru eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þórarin Eldjárn.

Ágústa Skúladóttir er einn vinsælasti leikstjóri á landinu í dag og er mikill fengur að því fyrir LH að fá hana til verksins. Ubbi kóngur verður fimmta sýningin undir hennar stjórn á fjölunum á þessu leikári. Hinar fjórar, Lína Langsokkur í Borgarleikhúsinu, Öldin okkar með hljómsveitinni Hundi í óskilum hjá Leikfélagi Akureyrar og í Borgarleikhúsinu, Töfraflautan – óperusýning fyrir börn í Hörpu og söngleikurinn Björt í sumarhúsi sem fluttur var í Hörpu og Tjarnarbíói, hlutu allar einróma lof gagnrýnenda.

Sýningar verða í Gaflaraleikhúsinu.  Miðarnir eru seldir á midi.is, en einnig er hægt að panta miða í síma 565 5900.  Upplýsingar um sýningartíma eru á heimasíðu Leikfélags Hafnarfjarðar, www.leikhaf.is.