Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn, 27. febrúar, gamanleikinn BÓT OG BETRUN eftir Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla.
Bót og betrun er gamanleikur eins og þeir gerast bestir, hefðbundinn farsi með misskilningi, flækjum og pínlegum aðstæðum af öllu tagi eins og efnið ber með sér. Verkið á erindi við alla sem vilja upplifa gleði og glaum og gera vel við hláturtaugarnar.
Alls taka 10 leikarar þátt í sýningunni en með aðalhlutverk fara þeir Stefán Ólafsson og Guðmundur Karl Sigurdórsson, báðir þrautreyndir á leiksviðinu. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson en þetta er í fimmta sinn sem hann leikstýrir hjá Leikfélagi Selfoss.
Næstu sýningar verða 1. mars, 5. mars, 6. mars, 7. og 8.mars og hefjast klukkan 20.00
Miðaverð 2200 kr. Miðapantanir og upplýsingar í síma 482-2787 eftir kl.14.00 og á leikfelagselfoss@gmail.com.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi!
Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún.