Leikfélag Ölfuss sýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar Kristberg Jónsson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir og Ólöf Þóra Þorkelsdóttir. Sýnt verður í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.

Enginn með Steindóri er drepfyndið gamanleikrit sem kemur sífellt á óvart. Sagan gerist á heimili bankastjóra nokkurs og hans listelskandi ektakvinnu en þau hafa boðið foreldrum verðandi tengdasonar síns í mat. Þegar fólkið fer að kynnast tekur leikurinn að æsast og ekki lagast það þegar bróðir verðandi tengdasonarins mætir óboðinn í partíið. Sprenghlægilegar persónur og óútreiknanlegur söguþráður.

Sýningin hentar ekki ungum börnum.

Sýningar verða sem hér segir:

4. sýning 11. nóvember kl. 20:00 – UPPSELT

5. sýning 13. nóvember kl. 20:00 – UPPSELT

6. sýning 18. nóvember kl. 20:00 – UPPSELT

7. sýning 20. nóvember kl. 20:00

8. sýning 21. nóvember kl. 20:00

9. sýning 22. nóvember kl. 20:00

Miðaverð er kr. 2500 og miðapantanir eru í síma 661-0501 og á leikfjelag@gmail.com