Leikfélag Akureyrar frumsýnir hið fyndna og undursamlega verk Lewis Carroll„ Lísu í Undralandi“ í nýrri leikgerð Margrétar Örnólfsdóttur og við tónlist eftir dr. Gunna í Samkomuhúsinu í lok febrúar 2015. Leikstjóri verður Vignir Rafn Valþórsson, Sigríður Sunna Reynisdóttir hannar leikmynd og búninga og með hlutverk Lísu fer Thelma Marín Jónsdóttir.

Önnur hlutverk eru í höndum Benedikts Karls Gröndal, Sólveigar Guðmundsdóttur og Péturs Ármannssonar. Auk þess er gert ráð fyrir að fjórir ungir leikarar taki þátt í sýningunni.

Leikfélag Akureyrar bendir ungu fólki (14-18 ára) sem vill taka þátt í þessari spennandi uppsetningu á að í tengslum við hana munu fara fram sérstakar áheyrnarprufur. Prufurnar verða laugardaginn 15. nóvember n.k. (í Rýminu), en skráning fer fram á netfanginu midasala@leikfelag.is.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri í síma 4 600 200.