ImageJólaverkefni Þjóðleikhússins að þessu sinni er Túskildingsóperan eftir Bertolt Brecht og Kurt Weill. Leikstjóri er Stefán Jónsson.
Þegar sómakærir Íslendingar eru rétt búnir að kyngja jólaöndinni sprettur fram hinn forboðni ávöxtur leikhúsjöfranna Bertolts Brecht og Kurts Weill. Þetta óperuútfrymi gerði allt vitlaust þegar það var frumsýnt í Berlín 1928.

ImageTúskildingsóperan synti á móti straumi og stefnum, ristilspeglaði borgaraleg gildi og var annaðhvort lofsungin eða úthrópuð sem argasta klám. Áhorfendur kölluðu þó ekki allt ömmu sína í Weimarlýðveldinu, Sódómu millistríðsáranna. Áður en verkið varð eins árs reyndist það mesti "hittari" þýskrar leiklistarsögu, var leikið tíu sinnum á dag í fimmtíu borgum víðsvegar í Evrópu. Sagan sem byggir á betlaraóperu Johns Gay frá 1728 fjallar um skrautlegan lýð, broddborgara og bófa. Þar segir af ólöglegum yfirtökum á eignum og tilfinningum. Makki hnífur spyr: Hver er munurinn á að ræna banka og að taka yfir banka? Missið ekki af þessu sveitta sígilda Weimarpönki, breiðu bökunum, hórunum og þjófunum.

Alls taka sautján leikarar þátt í sýningunni. Í hlutverkum herra og frú Peachum eru þau Egill Ólafsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Ólafur Egill Egilsson fer með hlutverk Makka hnífs og Atli Rafn Sigurðarson er Brown lögregluforingi. Halla Vilhjálmsdóttir leikur Polly, Katla Margrét Þorgeirsdóttir Jenny og Edda Björg Eyjólfsdóttir Lucy. Aðrir leikarar í sýningunni eru Baldur Trausti Hreinsson, Bjartmar Þórðarson, Eline McKay, Gísli Pétur Hinriksson, Hjálmar Hjálmarsson, Margrét Kaaber, Ólafur Steinn Ingunnarson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Selma Björnsdóttir og Sigurður Skúlason. Fjórir leikaranna leika nú í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu, þær Katla Margrét, Edda Björg, Eline og Halla.

Davíð Þór Jónsson hefur gert nýja þýðingu á verkinu, bæði á leiktextanum og söngtextum. Börkur Jónsson, höfundur leikmyndar og Rannveig Gylfadóttir búningahöfundur koma nú til starfa við Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn. Gideon Kiers sér um myndvinnslu og lýsingu hannar Björn Bergsteinn Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson en tíu manna hljómsveit tekur þátt í sýningunni. Um dansa og sviðshreyfingar sér sænski kóreógrafinn Palle Dyrvall sem starfar nú í fyrsta sinn hér á landi. Aðstoðarmaður leikstjóra er Jón Atli Jónasson og leikstjóri er Stefán Jónsson.

Frumsýning verður á Stóra sviðinu 26. desember 2005.