Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð verður haldin í 7. sinn dagana 27.-31. ágúst n.k. Í þetta sinn einbeitir hátíðin sér að samskiptum innanbúðarmanna- og kvenna í íslensku samfélagi; afmörkuðum áhyggjum þeirra af ástinni, fjölskyldu, innilokunarkennd, túrisma og leigumarkaði.

Sjónum okkar verður beint að því sem gengur á í okkar ástkæra, agnarsmáa ríki og reynt að draga upp lifandi mynd af þessu samfélagi sem við fáum framan í okkur á hverjum degi, eins og blauta tusku.

Lókal leitast nú sem ávallt við að draga fram í dagsljósið nýja strauma og stefnur í íslenskum sviðslistum. Að þessu sinni munu áhorfendur okkar:
– Verða vitni að einstakri og ögrandi danslist Margrétar Söru
– Kynnast ömmunni sem arfleiddi fjölskyldu sína að nokkrum tonnum af grjóti
– Fylgjast með sjeikspírskum sálfræðihernaði þriggja samleigjenda Vesturbænum
– Fá aðgang að furðulegum heimi Bláskjás í Kópavogi
– Taka þátt í líknandi dagskrá Kviss Búmm Bang í Borgarleikhúsinu
– Ganga – ásamt barni að eigin vali – um borg leyndardóma og töfra
– Una sér við óvæntar uppákomur

Sýningar á LÓKAL 2014:
Blind Spotting eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur
Petra eftir Pétur Ármannsson og Brogan Davison
Gudda, an epic tale eftir Völu Höskulsdóttur
Flækjur eftir Kviss búmm bang
Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson
Ég ♥ Reykjavík eftir Aude Busson
Haraldurinn í leikstjórn Dóru Jóhannsdóttur

LÓKAL og Reykjavík Dance Festival verða með sameiginlega miðasölu í Tjarnarbíói 25.-31. ágúst kl. 13:00-18:00. Fram að því er hægt að panta miða á netfanginu tickets@lokal.is eða í síma 782 7242

Nánari upplýsingar á www.lokal.is