Tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslitaverðlaunanna 2014, voru kunngjörðar í dag og hlaut Eldraunin Eldraunin eftir Arthur Miller í leikstjórn Stefans Metz, í sviðssetningu Þjóðleikhússins, flestar tilnefningar eða ellefu talsins.
Verðlaunin verða veitt í 12. sinn við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins þann 16. júní nk. og sýnd í beinni útsendingu á RÚV.Næstflestar tilnefningar, eða 10, hlaut óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson í leikstjórn Stefáns Baldurssonar og í sviðsetningu Íslensku óperunnar.
Sýningarnar Furðulegt háttalag hunds um nótt eftir Simon Stephens í leikstjórn Hilmars Jónssonar, í sviðsetningu Borgarleikhússins, og Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar, í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar, hlutu hvor um sig sjö tilnefningar.
Um sjötíu verk komu til greina til Grímuverðlauna, þar af 7 útvarpsverk, 10 barnaleikhúsverk, 18 dansverk og 40 sviðsverk.
Verðlaunaflokkarnir eru alls 18 og fimm tilnefningar í hverjum flokki nema tveimur, en þrjú verk eru tilnefnd sem útvarpverk ársins og tíu sýningar eða hópar sem sproti ársins.
Hér eru tilnefningarnar:
Sýning ársins 2014:
Eldraunin eftir Arthur Miller í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Furðulegt háttalag hunds um nótt eftir Simon Stephens í sviðsetningu Borgarleikhússins
Gullna Hliðið eftir Davíð Stefánsson í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur í sviðsetningu Lab Loka
Leikrit ársins 2014:
Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson í sviðsetningu Borgarleikhússins
Harmsaga eftir Mikael Torfason í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Ragnheiður eftir Friðrik Erlingsson í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur í sviðsetningu Lab Loka
Svanir skilja ekki eftir Auði Övu Ólafsdóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikstjóri árins 2014:
Egill Heiðar Anton Pálsson fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Rúnar Guðbrandsson fyrir Stóru börnin í sviðsetningu Lab Loka
Stefán Baldursson, Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Stefan Metz fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Vignir Rafn Valþórsson fyrir Bláskjá í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikari ársins 2014 í aðalhlutverki:
Hilmir Snær Guðnason fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Ingvar E. Sigurðsson fyrir Jeppa á Fjalli í sviðsetningu Borgarleikhússins
Ólafur Darri Ólafsson fyrir Hamlet í sviðsetningu Borgarleikhússins
Stefán Hallur Stefánsson fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aðalhlutverki :
Edda Björg Eyjólfsdóttir fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Óskasteina í sviðsetningu Borgarleikhússins
María Pálsdóttir fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Selma Björnsdóttir fyrir Spamalot í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins 2014 í aukahlutverki:
Arnar Jónsson fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Arnmundur Ernst B. Björnsson fyrir Jeppa á Fjalli í sviðsetningu Borgarleikhússins
Bergur Þór Ingólfsson fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Sigurður Skúlason fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Stefán Hallur Stefánsson fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins í 2014 aukahlutverki:
Elma Stefanía Ágústsdóttir fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Hildur Berglind Arndal fyrir Hús Bernhörðu Alba í sviðsetningu Borgarleikhússins
Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Óskasteina í sviðsetningu Borgarleikhússins
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikmynd ársins 2014:
Egill Ingibergsson fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Grétar Reynisson fyrir Jeppa á Fjalli í sviðsetningu Borgarleikhússins
Gretar Reynisson fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Sean Mackaoui fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Stígur Steinþórsson fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Búningar ársins 2014:
Helga I. Stefánsdóttir fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Helga Mjöll Oddsdóttir fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
María Th. Ólafsdóttir fyrir Hamlet í sviðsetningu Borgarleikhússins
Þórunn María Jónsdóttir fyrir Hús Bernhörðu Alba í sviðsetningu Borgarleikhússins
Þórunn S. Þorgrímsdóttir fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Lýsing ársins 2014:
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Hamlet í sviðsetningu Borgarleikhússins
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Jeppa á Fjalli í sviðsetningu Borgarleikhússins
Egill Ingibergsson fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Páll Ragnarsson fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Tónlist ársins 2014:
Ásgeir Trausti og Frank Hall fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Gunnar Þórðarson fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Hljómsveitin Eva fyrir Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Megas og Bragi Valdimar Skúlason fyrir Jeppa á Fjalli í sviðsetningu Borgarleikhússins
Skálmöld fyrir Baldur í sviðsetningu Borgarleikhússins
Hljóðmynd ársins 2014:
Frank Hall og Thorbjørn Knudsen fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins
Halldór Snær Bjarnason fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Ólafur Örn Thoroddsen fyrir Hús Bernhörðu Alba í sviðsetningu Borgarleikhússins
Stefán Már Magnússon fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson fyrir Litla prinsinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Söngvari ársins 2014:
Elmar Gilbertsson fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Hallveig Rúnarsdóttir fyrir Carmen í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Selma Björnsdóttir fyrir Spamalot í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Viðar Gunnarsson fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Þóra Einarsdóttir fyrir Ragnheiði í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Dansari ársins 2014:
Brian Gerke fyrir Berserki í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Brian Gerke fyrir Farangur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Elín Signý W. Ragnarsdóttir fyrir Járnmör/ Ironsuet í sviðsetningu Reykjavík Dance Festival
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir fyrir Farangur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Snædís Lilja Ingadóttir fyrir Farangur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Danshöfundur ársins 2014:
Brogan Davison fyrir Dansaðu fyrir mig í sviðsetningu Brogan Davison og Péturs Ármannssonar
Helena Jónsdóttir, Tími í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Saga Sigurðardóttir, Scape of Grace í sviðsetningu Reykjavik Dance Festival
Valgerður Rúnarsdóttir, Farangur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Valgerður Rúnarsdóttir, Þyrí Huld Árnadóttir og Urður Hákonardóttir, ÓRAUNVERULEIKIR í sviðsetningu Urðar Hákonardóttur, Valgerðar Rúnarsdóttur, Þyríar Huldar Árnadóttur og Þjóðleikhússins
Barnasýning ársins 2014:
Aladdín eftir Bernd Ogrodnik í sviðsetningu Brúðuheima og Þjóðleikhússins
Fetta Bretta eftir Tinnu Grétarsdóttur í sviðsetningu Bíbí og Blaka og Þjóðleikhússins
Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur í sviðsetningu Soðins sviðs og Þjóðleikhússins
Hamlet litli eftir Berg Þór Ingólfsson í sviðsetningu Borgarleikhússins
Unglingurinn eftir Arnór Björnsson og Óla Gunnar Gunnarsson í sviðsetningu Gaflaraleikhússins
Útvarpsverk ársins 2014:
Hér eftir Kristínu Ómarsdóttur. Leikstjórn og útvarpsleikgerð Bjarni Jónsson í sviðsetningu Útvarpsleikhússins
Slysagildran eftir Steinunni Sigurðardóttur. Leikstjórn Hlín Agnarsdóttir í sviðsetningu Útvarpsleikhússins, í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.
Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson. Leikstjórn Viðar Eggertsson í sviðsetningu Útvarpsleikhússins, í samvinnu við Leikfélag Akureyrar og Minjasafnið á Akureyri.
Sproti ársins 2014
Aldrei óstelandi fyrir Lúkas í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins
Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson fyrir Unglinginn í sviðsetningu Gaflaraleikhússins
Bergur Þór Ingólfsson leikskáld fyrir Hamlet litla í sviðsetningu Borgarleikhússins
Brogan Davison og Pétur Ármannsson fyrir Dansaðu fyrir mig í sviðsetningu Brogan Davison og Péturs Ármannssonar
Elín Signý W. Ragnarsdóttir fyrir Járnmör/ Ironsuet í sviðsetningu Reykjavík Dance Festival
Friðgeir Einarsson fyrir Tiny Guy í sviðsetningu Kriðpleirs og Lókal
Inga Huld Hákonardóttir fyrir Do Humans Dream of Android Sleep? í sviðsetningu Ingu Huldar Hákonardóttur
Lilja Sigurðardóttir leikskáld fyrir Stóru börnin í sviðsetningu Lab Loka
Tinna Grétarsdóttir og Bíbí og blaka fyrir Fetta Bretta í sviðsetningu Bíbí og blaka og Þjóðleikhússins
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld fyrir Bláskjá í sviðsetningu Borgarleikhússins