Sýningar standa nú  yfir hjá Leikfélagi Húsavíkur á leikritinu Sitji guðs englar. Þetta er leikgerð Illuga Jökulssonar upp úr þrem bókum Guðrúnar Helgadóttur; Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikstjórar eru Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir.

Uppselt hefur verið á allar sýningarnar 17 sem sýndar hafa verið. Sýnt verður fram til 1. maí en þá verður englum pakkað niður til hvíldar.

 

 

Sitji guðs englar fjallar um fátæka og barnmarga fjölskyldu í íslensku sjávarþorpi á hernámsárunum og við sjáum lífið á þessum árum gegnum augu barnanna. Hinar og þessar uppákomur verða í lífi þessara barna, sumar fyndnar og skemmtilegar og aðrar mjög sorglegar.

„Þessir krakkar sem eru að stíga á svið í fyrsta skipti eru ótrúlegir og það er hreinlega eins og þau hafi aldrei gert annað en að leika. Æfingatímabilið hefur verið frekar stutt miðað við hvað þetta er flókin sýning og mannmörg en með svona hæfileikafólk á sviðinu er það lítið mál.

Leikfélag Húsavíkur þarf ekki að kvíða framtíðinni með þetta fólk innanborðs ásamt öllum reynsluboltunum“. Segja leikstýrin Margrét og Oddur.
„Leikmyndin ein og sér er náttúrulega bara listaverk. Allt í einu er litla sviðið í Samkomuhúsinu orðið að heilu þorpi. Það er hann Sveinbjörn Magnússon sem á mestan heiðurinn að leikmyndinni. Við komum með óskir um hitt og þetta og hann hannaði svo og smíðaði með aðstoð smíðaflokksins síns. Miklir snillingar þar á ferð. Svo fengum við ómetanlega hjálp frá Norðursiglingu og Sigurði Narfa tökumanni til að taka upp þessar stuttu senur sem gerast úti á sjó og varpað er á vegginn“.

„Við getum lofað góðri skemmtun í leikhúsinu. Þetta er falleg, fyndin, sorgleg og hugljúf sýning sem öll fjölskyldan getur notið saman“. Sögðu þau Margrét og Oddur Bjarni að lokum og miðað við það sem ljósmyndari 640.is sá á æfingu nú í vikunni getur hann tekið heilshugar undir það.

(Frétt af 640.is)