Föstudagskvöldið 25. apríl kl. 20:30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Klúður & klaufaskapur frá árinu 1987 á Melum.
Hvað gerðist í sveitinni á níunda áratug síðustu aldar?
Manstu eftir J-listanum eða fiskeldinu?
Gómsætt kleinukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn hefðbundna og létta varning.
Vinsamlegast látið berast til vina og ættingja utan sveitar.