Stund milli stríða er nýr íslenskur söngleikur sem leikfélagið Hugleikur frumsýnir i Tjarnarbíói 5. apríl. Alls eru áætlaðar sjö sýningar. Sögusviðið er Reykjavík millistríðsáranna, sem reynist eiga sér merkilega margar og sláandi hliðstæður í nútímanum.
Haustið 1932 streyma stúlkur utan af landi í bæinn til að ganga í húsmæðraskóla. Þær eru uppfullar af spenningi og bjartsýni æskunnar en vita ekki að skólinn á í rekstrarvandræðum þar sem ástandið í þjóðfélaginu eftir heimskreppu skapar aðstæður sem þrengja að. Skömmuntarseðlar, áfengisbann, berklaveiki, þjóðernisrembingur og almenn spilling yfirvalda markar líf þeirra sem reyna að fóta sig í íslensku samfélagi fjórða áratugarins.
Höfundur verksins er Þórunn Guðmundsdóttir. Þórunn hóf leikritunarferil sinn með stæl þegar söngleikurinn Kolrassa sló eftirminnilega í gegn hjá Hugleik árið 2002. Þórunn semur bæði leik- og söngexta og tónlistina að auki, enda kona ekki einhöm. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson, en hann sviðsetti einmitt hina rómuðu Kolrössu á sínum tíma.
Alls taka sextán leikarar þátt í uppfærslunni ásamt hljómsveit, en tónlistin ber að sjálfsögðu svipmót tíðarandans.
Sýningardagar:
05. april kl. 20 – frumsýning
12. apríl kl. 20 – 2. sýning
13. apríl kl. 15 – 3. sýning
21. apríl kl. 20 – 4. sýning
23. apríl kl. 20 – 5. sýning
24. apríl kl. 20 – 6. sýning
27. apríl kl. 20 – 7. sýning
Miðaverð er kr. 2.800. Miðasala er á midi.is. Öryrkjar, ellilífeyrisþegar og börn fá miðann á kr. 2.400. Einnig er framhaldsskólanemum boðið upp á 2 fyrir 1 tilboð.