Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna miðvikudaginn 11. desember kl. 20. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetrator, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummáli The Night Before Christmas. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er aðeins rétt rúmur klukkutími að lengd. Hún er tilvalin fyrir þá sem vilja taka sér örlitla upplyftingu frá jólaamstrinu, að ekki sé talað um þá sem eru komnir með uppí kok af þessu „jólakjaftæði“.

Verkið fjallar í stuttu máli um tvo félaga sem góma innbrotsþjóf á aðfangadagskvöldi, klukkutíma fyrir jól. Þjófurinn heldur því statt og stöðugt fram að hann sé raunverulegur jólasveinn. Þeir halda honum föngnum til að draga hann til ábyrgðar fyrir það sem komið hefur fyrir jólin. Að hátíð ljóss og friðar sé orðin hátíð græðgi og sýndarmennsku. Það fara þó að renna á þá tvær grímur þegar líður á kvöldið og ýmislegt sem þeir geta ekki útskýrt fer að koma upp á yfirborðið.

Miðaverð fer eftir því í hvaða tekjuflokk fólk er: 2000 fyrir lágtekjufólk, 3000 fyrir millitekjufólk og 5000 fyrir hátekjufólk. Áhorfendur velja í hvaða flokk það setur sig.

Aðstandendur sýningarinnar eru:Leikarar: Benedikt Karl Gröndal, Davíð Freyr Þórunnarson, Kári Viðarsson og Svandís Dóra Einarsdóttir.Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson.
Þýðing og staðfæring: Hjörtur Jóhann Jónsson og Vignir Rafn Valþórsson.