Leikfélagið Borg sýnir um þessar myndir leikritið Afsakið Hlé! eftir Árna Ibsen, leikstýrt af Lilju Nótt.
Leikritið hefur fengið feikna góðar viðtökur og ekki skemmir að það er sýnt í Litla Borgarleikhúsinu í Gömlu Borg, húsið er byggt 1929 og hefur því mikinn sjarma.
Afsakið hér er grafalvarlegum gjaldþrotafarsa. Fyrirtækið er komið á heljarþröm, forstjórinn búinn á því og morguninn lofar engu góðu.
Ævar Eiður ætlar þó ekki að gefast upp. Með aðstoðarmanninn sér við hlið reynir hann að halda í glansmyndina, bjarga því sem bjargað verður og sannfæra sjálfan sig um að allt sé enn undir stjórn.
Í þessu litla og sögufræga leikhúsrými eru leikarar og áhorfendur í návígi, sem gefur sýningunni sérstakan og persónulegan blæ.
Sætafjöldi er takmarkaður, svo vissara er að tryggja sér miða í tíma. Miðasala er á Tix.
