Freyvangsleikhúsið hefur undanfarið sýnt Útsynning, leikrit Hjálmars Arinbjarnarsonar og nú eru aðeins 2 sýningar eftir, 30. og 31. október. Sigrún Pétursdóttir fór á sýninguna og skrifaði um upplifun sína:
Á fjölum Freyvangsleikhússins standa nú yfir sýningar á nýjum frumsömdum gamanleik, Útsynningi eftir Hjálmar Arinbjarnarson, í leikstjórn Jóhönnu Sigurbjargar Ingólfsdóttur.
Það er ákveðin áhætta fólgin í því að setja upp leikrit sem gerist alfarið í búningsklefa leikara. Áhorfendur sjá ekki sýninguna sem verið er að flytja, verkið Cloud nine eftir Caryl Churchill, en er í stað þess boðið að gerast fluga á vegg í rauntíma stemmingu baksviðs þar sem dramatík, drasl og búklykt af öllu tagi á sér pláss – og útkoman verður óborganleg skemmtun.
Höfundi tekst að skapa ansi litríkan hóp á sviðinu og gaman var að fylgjast með mismunandi karakterum hvers og eins – og að sama skapi túlkun leikara á sviði sem allir fengu að blómstra. Mannfólkið er jú jafn misjafnt og það er margt og því má með sanni ætla að í búningsklefanum sé heilt litróf persónuleika.
Innkoma Tinnu Evudóttur var óborganleg í hlutverki Sóleyjar, en samskipti hennar við fólkið í kringum sig einkenndist iðulega af hnyttni á hárréttum tímapunkti. Situr Tinna vel í hlutverki sínu, einnig má nefna Odd Atla Guðmundsson í hlutverki Kristó sem að sama skapi fór fumlaust með sitt og var útgeislun þeirra beggja eftirtektarverð. Baddi Ingimarsson, Níels Kristinn Ómarsson og Sveinn Brimar Jónsson Í hlutverkum Nonna, Tedda og Gísla hittu einnig oft beint í mark og í heildina var mikil skemmtun af að fylgjast með orkunni sem einkennir jafnan sýningar Freyvangsleikhússins.
Fullur salur var á fjórðu sýningu enda Útsynningur ánægjuleg viðbót í íslensku leikritaflóruna og Hjálmar Arinbjarnarson handritshöfundur á framtíðina fyrir sér sem slíkur.
Takk fyrir mig,
Sigrún Pétursdóttir


