Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á verkefni vetrarins. Að þessu sinni verður leikverkið Grandavegur 7 sett upp. Um er að ræða leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundóttur á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur.
Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson, en hann hefur áður sett upp þrjár sýningar með félaginu, Sólarferð, Kirsuberjagarðinn og Djöflaeyjuna.
Verkið er örlagasaga þriggja kynslóða íbúa hússins að Grandavegi 7, séð með augum Fríðu, unglingsstúlku sem sér meira en aðrir sjá.
Stefnt er að frumsýningu við lok október.
Grandavegur 7 hjá Leikfélagi Selfoss


