Nýtt verk úr smiðju Braga Ólafssonar, Maður að mínu skapi, verður frumsýnt laugardaginn 14. september á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fyrri leikrit Braga Ólafssonar, Hænuungarnir og Belgíska Kongó  hlutu afbragðs viðtökur og voru bæði tilnefnd til Grímunnar, auk þess sem Bragi var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Hænuungana. Líkt og í þessum verkum fer Eggert Þorleifsson nú með aðalhlutverk og Stefán Jónsson leikstýrir.

Verkið fjallar um hina eilífu baráttu pennans og sverðsins. Fræðimaðurinn Guðgeir Vagn Valbrandsson er í þann veginn að leggja lokahönd á safnrit með fleygum orðum. Vinur hans Klemens Magnason, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hyggur á endurkomu í stjórnmálin eftir að hafa neyðst til að segja af sér embætti. Hvorugan þeirra gæti grunað að hreingerningarkonan sem Guðgeir ræður til að þrífa hjá sér tengist litlu leyndarmáli úr fortíð þeirra beggja. Auk þess reynist bróðir hennar vera gamall skólabróðir þeirra vinanna, maður sem telur sig eiga harma að hefna á þeim báðum.

Þótt segja megi að Maður að mínu skapi fjalli um baráttu pennans og sverðsins snýst verkið ekki síður um orðin úr goggi páfagauksins og vænghaf hins tignarlega fálka.

Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson

Búningar: Agnieszka Baranowska

Hljóðmynd: Úlfur Hansson

Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Dramatúrg: Stefán Hallur Stefánsson

Leikarar: Eggert Þorleifsson, Kristbjörg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Þorleifur Einarsson og Þorsteinn Bachmann