Ástir liggja til allra átta – kramin hjörtu?
Leikfélag Hveragerðis verður með kaffileikhús í nóvember í húsi félagsins, Völundi við Austurmörk. Frumsýning verður laugardaginn 19. nóvember kl 20.30.
Sýndir verða þrír einþáttungar: Bara innihaldið og Á sama bekk eftir hugleikarann Sævar Sigurgeirsson og Afturelding eftir annan hugleikara, Þórunni Guðmundsdóttur. Alls fara 7 leikarar með 9 hlutverk í þáttunum og er leikstjóri Sigurður Blöndal.
Sýningar eru sem hér segir:
2. sýning sunnudag 20. nóvember
3. sýning miðvikudag 23. nóvember
4. sýning föstudag 25. nóvember
5. sýning sunnudag 27. nóvember
Allar sýningar hefjast kl 20.30 en húsið opnar kl 20:00. Miðapantanir eru í síma 483-4727. Miðaverð er kr. 1500, fyrir ellilífeyriþega/öryrkja/hópa kr. 1200.