Hvörf er ferðalag um völundarhús sálar og samfélags. Hér er annars vegar um að ræða hreinan sviðsskáldskap er lýtur sínum eigin lögmálum og nýtir sér margslungin meðöl leiklistarinnar og óheft hugarflug til að skapa veröld sem á sér stað langt handan hversdagsins og allra raunsæislegra viðmiða. Hins vegar sækir verkið allan sinn innblástur og orðræðu í blákaldan raunveruleikann, nefnilega svokallað Guðmundar og Geirfinnsmál sem skók íslenskt samfélag á árunum 1974 – 1980. Sá dómur er Hæstiréttur felldi þá hefur síðan legið eins og mara yfir þjóðinni.
Nýleg verk Lab Loka eru t.d. Steinar í djúpinu eftir Rúnar Guðbrandsson byggt á verkum Steinars Sigurjónssonar, Ufsagrýlur eftir Sjón og Svikarinn eftir þá Rúnar Guðbrandsson og Árna Pétur Guðjónsson byggt á verkum Jean Genet.
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger.
Tónlist og hljóðhönnun: Guðni Franzson.
Leikarar: Arnar Jónsson, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Friðrik Friðriksson, Stefán Hallur Stefánsson, Magnús Jónsson, Hilmir Jensson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þorsteinn Backman og fleiri.
Forsvarsmenn Lab Loka eru Birna Hafstein og Rúnar Guðbrandsson og frekari upplýsingar má finna á www.labloki.is