Leikfélag Akureyrar sýnir hið hugljúfa brúðuleikrit Sindri Silfurfiskur næstu tvær helgar. Þessi sýning hefur fengið margróma lof hvarvetna enda sérstaklega töfrandi og falleg. Í sýningunni er sérstök ljósatækni notuð til þess að skapa undurfallegan neðansjávarheim. Töfrandi kynjadýr hafsins svífa um og hrífa áhorfendur á öllum aldri. Sýningartími er um 40 mínútur.

Ef maður leggur kuðung upp að eyranu heyrist í hafinu. Þannig segir kuðungurinn frá því hver hann var og hvar hann bjó. En það var eins og Sindri silfurfiskur vildi gleyma hver hann í raun og veru var. Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfiskar er löngu hætt að selja fallegu fiskana sína. Þeir eru vinir hennar og hún vill miklu heldur segja af þeim sögur, eins og til dæmis söguna af Sindra silfurfiski og ævintýrum hans.

Almennt verð er 1.990.- kr en gegn framvísun KEA korts fæst miðinn á aðeins 1.500.-

Miðasala og frekari upplýsingar eru hér og í miðasölu leikfélagsins í síma 4 600 200 á milli 13 og 17 alla virka daga.