Þann 23. febrúar mun Þjóðleikhúsið frumsýna Fyrirheitna landið, nýtt verðlaunaleikrit eftir breska leikskáldið Jez Butterworth, á Stóra sviðinu. Fyrirheitna landið (Jerusalem) var frumflutt hjá Royal Court leikhúsinu í London árið 2009 og hlaut strax frábærar undirtektir og hefur verið sýnt við miklar vinsældir beggja vegna Atlantshafsins. Verkið hefur sópað að sér verðlaunum og hefur meðal annars hlotið Evening Standard og London Critics Circle leiklistarverðlaunin. Leikstjóri er Guðjón Pedersen og Mikael Torfason þýddi verkið.

Sögusviðið er fagur skógarlundur í útjaðri smábæjar, þorpshátíðin er að hefjast. Hér býr Johnny Byron í hjólhýsi sínu. Náungi sem fælir frá hina ráðvöndu en laðar að sér alla þá sem eru að leita að spennu í líf sitt. Fulltrúar bæjaryfirvalda ætla að láta bera hann út, sex ára sonur hans vill að hann fari með sig á hátíðina, maður nokkur sem er að leita að stjúpdóttur sinni ætlar að berja hann og marglitt samsafn af kunningjum vill fá hjá honum sinn skerf af brennivíni og dópi. Í Johnny hefur löngum ólgað einhver villtur frumkraftur sem í senn hefur skelft fólk og heillað. En getur hann bjargað sér nú þegar allt virðist komið í óefni? Í Fyrirheitna landinu bregður höfundur upp leifturskýrri mynd af nútímasamfélaginu, sláandi andstæðum þess og ógnvekjandi öfgum. 

Hilmir Snær Guðnason fer með hlutverk Johnnys Byrons, hins heillandi útlaga sem allir virðast ýmist elska að hata eða hata að elska, í uppfærslu Þjóðleikhússins.

Leikarar í sýningunni eru auk Hilmis þau Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Jóhann G. Jóhannsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Melkorka Pitt, Pálmi Gestsson, Saga Garðarsdóttir, Snorri Engilbertsson og Ævar Þór Benediktsson. Tveir drengir, þeir Ásgeir Sigurðsson og Stefán Árni Gylfason, skipta með sér hlutverki í sýningunni. Höfundur leikmyndar er Finnur Arnar Arnarsson, Elín Edda Árnadóttir hannar búninga og Ólafur Ágústsson sér um lýsingu.