Áttundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Undanfarin sjö ár hefur verið uppselt á allar sýningarnar og ef fer sem horfir verða 200 uppseldar sýningar á þessu skemmtilega aðventuævintýri komnar í hús fyrir jól. Það er því um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt hangiket á jólum! Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.

Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. Meðal viðkomustaða á ferðalagi þeirra eru Kristalsalurinn, Leikhúsloftið og Leikhúskjallarinn. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og í nútímanum.

Leitin að jólunum er eftir Þorvald Þorsteinsson og er sýningin ríkulega hljóðskreytt með tónlist Árna Egilssonar við Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á aðventunni 2005 og hlaut Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin sem barnasýning ársins árið 2006. Leitin að jólunum hefur alla tíð notið fádæma vinsælda og uppselt hefur verið á nær því hverja einustu sýningu frá því hún var fyrst sýnd. Sýningar hefjast að nýju laugardaginn 24.nóv og verða að jafnaði þrjár sýningar sérhvern laugardag og tvær sérhvern sunnudag til jóla.

Leikarar eru þau Selma Björnsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Hilmir Jensson, Ævar Þór Benediktsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir.  Hljóðfæraleikarar eru Darri Mikaelsson og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir.