Nú fer hver að verða síðastur að sjá Rummung ræningja hjá Leikfélag Ölfuss því nú fara í hönd síðustu sýningar á þessu þýska fjölskylduleikriti eftir barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað sjálfur Rummungur, grimmastur og ógurlegastur allra ræningja í Ræningjaskógi. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann gerði jafnframt nýja þýðingu verksins. Sýnt er í Versölum, Þorlákshöfn.

Síðustu sýningar eru sem hér segir:

Laugardagur 17. nóvember kl. 14.00
Sunnudagur 18. nóvember kl. 14.00
Laugardagur 24. nóvember kl. 14.00
Sunnudagur 25. nóvember kl. 14.00 – Allra síðasta sýning!

Frændurnir Kaspar og Sæli gefa ömmu sinni dýrindis kaffikvörn í afmælisgjöf og það er ekki nóg með að hún mali kaffi heldur spilar hún uppáhalds lagið hennar ömmu í leiðinni. Amma fær þó ekki að njóta kaffikvarnarinnar lengi því hinn grimmi og ógurlegi Rummungur ræningi rænir henni af ömmu áður en afmælisdagurinn er liðinn. Þar sem lögregluþjóninn Vindbelgur varðstjóri er meira fyrir að auglýsa eftir glæpamönnum en beinlínis handtaka þá ákveða Kaspar og Sæli að leggja gildru fyrir Rummung, taka hann fastann og endurheimta kaffikvörnina. Margt fer þó öðruvísi en ætlað var og áður en þeir vita af eiga þeir ekki bara í útistöðum við Rummung heldur líka hina lævísu galdranorn Þeófílíu Plúmmendrúpp sem býr yfir dularfullu leyndarmáli í kjallaranum sínum.

Miðasala í síma 664-6454 (Þrúður) og 692-2761 (Jóhanna)

Miðaverð er kr. 2000 (enginn posi á staðnum)

Rummungur ræningi er á Facebook!