Nú eru einungis þrjár sýningar eftir á uppsetningu Frystiklefans á Rifi á Trúðleik eftir Hallgrím  H. Helgason, í leikstjórn Halldórs Gylfasonar. Þær eru 12., 13. og 14. júlí og hefjast allar kl. 17. Leikarar í sýningunni eru Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson.

Þeir Skúli og Spæli eru tveir trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og gosbrunni. Spæli er hins vegar krumpuð og tortryggin típa. Fljótlega kemur babb í bátinn. Spæli kemst að því að þeir félagar hafi greinilega enn einu sinni lent á vitlausum áhorfendum sem hlæi á kolröngum stöðum.

Trúðleikur er sprellfjörugur, og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Sýningin er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um aldamótin síðustu. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á eftir einleiknum HETJU og karíókísplatternum Góðir Hálsar sem báðar hlutu frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda á sínum tíma.

Miðaverð er 2.500 kr.