Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Mondial du Theatre í Monaco dagana 19.-28. ágúst 2013.
Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað aukalega fyrir það. Ferðakostnaður er greiddur af þátttakendum sjálfum.
Sýningin má ekki vera lengri en 60 mín. og í reglum hátíðarinnar segir; „strongly advised to present predominantly visual performances“.
Sækja skal um til Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir 1. september 2012.
IATA (International Amateur Theatre Association) stendur fyrir alþjóðlegum leiklistarhátíðum annað hvert ár. Samkvæmt áralangri hefð er hún haldin í Monaco fjórða hvert ár en víðs vegar um heiminn fjórða hver ár á móti. Á þessar hátíðir er boðið sýningum alls staðar að úr heiminum og þess gætt að öll aðildarsamböndin innan IATA eigi þar fulltrúa. Ísland tilheyrir NEATA (norður evrópska áhugaleikhúsráðinu) en þaðan eru oftast nokkrar sýningar.
Þó að Ísland hafi tryggt sér rétt til að sækja um að koma með sýningu á hátíðina 2013 er ekki gulltryggt að sú sýning verði valin þar inn. Það fer eftir fjölda umsókna frá NEATA-löndunum og gæðum okkar sýningar miðað við hinar að mati sérstakrar valnefndar sem velur endanlega sýningar úr hópi umsækjenda.
Bandalagið skipar valnefnd eftir að umsóknarfrestur rennur út og tilkynnir úrslit vel fyrir 15. september nk. Allt efni um sýninguna sem verður valin þarf nefnilega að senda til Monaco með umsókn fyrir 15. september og valnefnd hátíðarinnar mun svo tilkynna um úrslit í nóvember 2012.
Ekki verður útbúið sérstakt umsóknareyðublað, en í umsókn þarf að koma fram nafn félags, leiksýningar, höfundar og leikstjóra. Myndbandsupptaka þarf að fylgja umsókn og athugið að sýningarlengdin má alls ekki ekki fara yfir 60 mín.