Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen á opnunardegi Sæluvikunnar þann 29. apríl næstkomandi í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt leikrit eftir Ray Cooney, Með vífið í lúkunum, 2006 og Viltu finna milljón?, 2008, auk þess að frumflytja Ray Cooney á íslensku leiksviði árið 1978 er félagið setti upp leikritið Eltu mig, félagi.

Tveir tvöfaldir er dæmigerður farsi sem gerist á Hótel Höll, en þangað fer alþingismaðurinn Ormur Karlsson ásamt konu sinni Pálínu til að slaka á undir lok þingsins. Við bætist Hreinn, aðstoðarmaður Orms og æsast þá leikar töluvert og upphefst hinn klassíski farsi.

Áætlaðar eru 8 sýningar og sýningarplan sem hér segir:

Frumsýning sunnudaginn 29. apríl kl. 20:30
2. sýning þriðjudaginn 1. maí kl. 20:30
3. sýning fimmtudaginn 3. maí  kl. 20:30 uppselt
4. sýning sunnudaginn 6. maí kl. 20:30
5. sýning fimmtudaginn 10. maí kl. 20:30
6. sýning miðnætursýning föstudaginn 11. maí kl. 23:00
7. sýning laugardaginn 12. maí kl. 17:00
Lokasýning sunnudaginn 13. maí kl. 20:30

Miðasala er í anddyrinu í Bifröst, virka daga frá kl. 16-18 og 30 mínútum fyrir sýningu. Miðasölusími er 849 9434.

http://www.skagafjordur.net/ls/

Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

{mos_fb_discuss:3}