Frá því Leikfélagið Peðið var stofnað á kránni Grand Rokk við Smiðjustíg árið 2005 hefur félagið sýnt fjölda verka, flest eftir félagsmenn og auk þess hafa félagar Peðsins samið tónlist og söngva þegar við á. Þannig er það líka að þessu sinni en jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssona sem verður frumsýndur á Gallery-Bar 46, Hverfisgötu 46, sunnudaginn 4. desember kl. 18.00

Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Aðstoðarleikstjóri og framkvæmdastjóri sýningarinnar er Hjördís Jóhannsdóttir. Leikmyndin er eftir Inga Rafn Haraldsson en höfundurinn og Helga Völdundardóttir hanna búninga. Alls koma hátt í þrjátíu manns að sýningunni. Jólasýningar Peðsins hafa slegið í gegn. Ekki er að efa boðskapur verksins að þessu sinni hitti í mark.

Andakt er eins konar hugleiðing um inntak jólanna en frá ansi óvæntum hliðum. Með verkinu er ekki verið að snúa hefðbundnum gildum á haus og það er heldur ekki verið setja út á jólahátíðina sjálfa. Nei, ekki aldeilis. Það má skilja á þátttakendum í sýningunni að þeir séu að skora sjálfa sig á hólm og vilji upplifa jólahátíðina á nýjan máta með von um að koma þeirri reynslu til skila til áhorfenda.

„Vel má vera að Castro gamli hafi getað frestað jólunum. En við vitum öll að hvað sem gengur á og hvar sem við erum þá ganga jólin í garð eða leggjast yfir,“ segir Vilhjálmur leikstjóri og höfundur verksins bætir stuttlega við: „Já, jólin koma með sína Helgu Nótt og Helga Frið, eins og fram kemur í sýningunni.“

Aðrar sýningar sem þegar hafa verið ákveðnar eru:
Sunnudaginn 11. desember kl. 16.00 og 18.00
Sunnudaginn 18. desember kl. 16.00 og 18.00
Sunnudaginn 8. janúar kl. 16.00 og 18.00

Félagar í Peðinu eru boðnir og búnir að veita allar frekari upplýsingar. Elín Hilmarsdóttir (863 0531) og Kristján Þorvaldsson (770 7360) geta liðsinnt áhugasömum.

{mos_fb_discuss:2}