Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Himnaríki – geðklofinn gamanleik, eftir Árna Ibsen þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn.  Árni Ibsen var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 1996 fyrir þetta verk og hefur það verið sýnt í mörgum löndum Evrópu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Ottó Rafn Halldórsson, Róbert Karl Ingimundarson og Þrúður Sigurðar.

Leikritið gerist í sumarbústað þar sem þrjú pör koma saman til að eiga skemmtilega helgi. Ýmiss konar mál koma upp og ástarflækjur gera vart við sig. Leikritið er leikið á tveimur sviðum samtímis og gerir það verkið afar sérstakt auk þess sem leikarar skella sér í heita pottinn í miðri sýningu.

Sýningar í október:
Föstudagur 14. okt. kl. 20:00 – frumsýning
Sunnudagur 16. okt. kl. 20:00
Þriðjudagur 18. okt. kl. 20:00
Þriðjudagur 25. okt. kl. 20:00
Föstudagur 28. okt. kl. 20:00
Laugardagur 29. okt. kl. 20:0

Miðaverð 2.000 kr. Ef hópur fer yfir 20 manns er miðinn á 1.800 kr. og ef fjöldi fer yfir 50 manns er hann á 1.500 kr

Miðasala í síma 893 1863 (Ásta) og 845 7795 (Hulda). Miðasala hefst klukkustund fyrir sýningu í Versölum. ATH. Posi ekki á staðnum.

Leikhúsmatseðill í Ráðhúskaffi

Forréttur:
Hvítlauksristaðir humarhalar á salatbeði

Aðalréttur:
Ofnbakað lambalæri með grilluðu grænmeti og bakaðri kartöflu

Eftiréttur í hléi:
Jarðarberja- og rabarbarasæla

Verð 3.500 kr. á mann
4.200 kr. m/fordrykk

Hægt er að panta mat fyrir sýningar í Ráðhúskaffi í síma 483 1700

{mos_fb_discuss:2}