Nemendaleikhúsið og Common Nonsense standa að sýningunni Forðist okkur. Frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu 29. september. Verkið er eftir Hugleik Dagsson. Leikstjórar eru Stefán Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar Stefánsdóttur, lýsingu annast Egill Ingibergsson og hljóðmynd skapar Davíð Þór Jónsson.
Hugmyndaheimur verksins er sprottinn upp úr verkum Hugleiks myndasögubókunum Elskið okkur , Drepið okkur og Ríðið okkur. Sögur Hugleiks er skemmtilegar, kaldhæðnar, grófar, ljótar, fallegar, ósmekklegar, gróteskar og rómantískar. Það rúmast allt í þessum heimi. Hver saga lætur ekki mikið yfir sér. Ein teikning með örlittlum texta. Í einfaldleika sínum tekst Hugleik á skondinn og áhrifamikinn hátt að beina sjónum okkar að margs skonar meinsemdum í samskiptum fólks, brengluðu gildismati, brengluðu siðferði og hættulegum félagslegum doða og afskiptaleysi. Sögur hans eru eins og ljósmynd úr lífi fólks og hann lætur okkur eftir að filla upp í götin. Forðist okkur er saga um nútímamanninn í sinni nöktustu mynd.
Miðapantanir eru í miðasölu Borgarleikhússins en almennt miðaverð er kr. 1.500 og 1.000 fyrir nemendur.
