Dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012 verður sjöunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Sønderborg á Suður-Jótlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.

Aðildarlönd NEATA eru Danmörk, Eistland, Finnland, Færeyjar, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð.

Hvert land má senda eina leiksýningu sem er að hámarki 90 mín. löng. Leikið verður á leiksviðum í hefðbundnum leikhúsum. Hátíðin greiðir uppihald og þátttöku í hátíðinni fyrir 10 manna hópa frá hverju landi, ef hóparnir eru stærri bera þeir sjálfir umframkostnað vegna uppihalds. Leikhóparnir gista í fjögurra manna herbergjum á svokölluðum hostelum. Ferðakostnaðinn geiða þátttakendur sjálfir.

Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalagsins fyrir 15. janúar 2012 á þar til gerðum eyðublöðum sem sett verða hér á Leiklistarvefinn um næstu mánaðarmót. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu.

Ísland þarf að tilkynna Dönum hvaða leiksýning fer á hátíðina fyrir 1. febrúar 2012.

NEATA, norður evrópska áhugaleikhúsráðið, var stofnað 1998 og heldur samskonar hátíðir á tveggja ára fresti, en þau lönd sem hafa skipulagt fyrri hátíðir eru Litháen, Svíþjóð, Eistland, Færeyjar, Lettland og svo Ísland á Akureyri 2010.