Leikfélagið Sýnir frumsýnir í Gaflaraleikhúsinu þann 10. september nýja leikgerð af riddarasögunni um Tristram og Ísönd og þeirri óbærilegu ást sem þau báru hvort til annars og þeim grimmu örlögu sem stíuðu þeim í sundur. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Einungis verða sýndar fimm sýningar.
Sagan af Tristram og Ísönd er ein þekkasta ástarsaga miðalda en hún segir frá riddaranum Tristram sem fengið er það verkefni að vinna ástir Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir hönd frænda síns, Markis Englandskonungs. Ekki vill þó betur til en svo að Tristram og Ísönd fella hugi saman og forboðið ástarsamband þeirra hefst, þrátt fyrir að Ísönd giftist Markis. Öfl innan hirðarinnar sitja að svikráðum og sjá sér leik á borði að notfæra sér ástandið sér til framdráttar.
Upphaflega stóð til að þetta yrði útileiksýning og sýnd í Elliðaárdalnum í sumar en af ýmsum orsökum var ákveðið að flytja sýninguna inn. Leikritið er mikið sjónarspil, mikið lagt í alla umgjörð og tónlist spilar veigamikið hlutverk í sýningunni. Ljósahönnuður er Benedikt Þór Axelsson, búninga hannar Dýrleif Jónsdóttir, leikmuni gerir Jón Örn Bergsson og hannar hann einnig leikmynd ásamt Ármanni Guðmundssyni. Tónlistin í verkinu er samin af leikhópnum, leikstjóra og Birni Thorarensen.
Sýningar verða:
Frumsýning laugardaginn 10.9.
2. sýning þriðjudaginn 13.9.
3. sýning föstudaginn 16.9.
4. sýning laugardaginn 17.9.
Lokasýning sunnudaginn 18.9.
Ármann Guðmundsson hefur leikstýrt hátt í annan tug leikrita hjá fjölmörgum áhugleikfélögum um allt land. Hann hefur jafnframt skrifað á þriðja tug leikrita sem sýnd hafa verið bæði í atvinnu- og áhugaleikhúsi og jafnframt samið tónlist fyrir mörg þeirra. Guðrún Sóley Sigurðardóttir hefur m.a. samið leikrit fyrir Leikfélag Hafnarfjarðar og sigrað í örleikritasamkeppni Þjóðleikhúsins.
Leikfélagið Sýnir var stofnað af ofvirkum áhugaleikurum sem sóttu fyrsta ár Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikara árið 1997. Síðan hefur félagið sett upp á annan tug verka með sérstaka áherslu á útileiksýningar og hefur þá gjarnan farið í leikferðir út á land. Á meðal verka sem félagið hefur sett upp eru Draumur á Jónsmessunótt, Mávurinn og Stútungasaga.
Sýningar hefjast kl. 20
Almennt miðaverð er 2.000 kr.
Miðaverð fyrir nema, ellilífeyrisþega og hópa (10 o.fl.) er 1.500 kr.
Miðasala Gaflaraleikhússins er opin virka daga frá 16.00 til 18.00 sími miðasölu er 565-5900 og sími í hópasölu er 860-7481.
Einnig er hægt að panta miða í midasala@gaflaraleikhusid.is og á midi.is
{mos_fb_discuss:2}