Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. mars leikritið Hedda Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum. Í þessu sígilda leikriti ræðst Ibsen að kjarna þeirra borgaralegu lífsgilda sem móta líf nútímamanna og stýra löngunum þeirra og ótta. Að lokinni sex mánaða brúðkaupsferð kemur Hedda Gabler heim í glæsilega einbýlishúsið sitt. Fastráðning eiginmanns hennar við háskólann er á næsta leiti, tilveran er þægileg og framtíðin hefur verið kortlögð. En það líður ekki nema sólarhringur þar til Heddu hefur tekist að mölva þessa fullkomnu mynd. Hvenær verður krafa nútímamannsins um öryggi að rammgerðu fangelsi? Og hvað gerist þegar við reynum að sleppa út?

Er Hedda Gabler fórnarlamb aðstæðna sinna, skarpgreind og viljasterk hetja sem berst gegn ofurvaldi samfélagsins eða er hún persónuleikatruflaður einstaklingur sem svífst einskis til að svala löngun sinni í vald yfir öðrum manneskjum? Kristín Eysteinsdóttir hlaut Grímuna sem leikstjóri ársins árið 2008 fyrir uppsetningu sína á Þeim ljóta hér í Þjóðleikhúsinu, og hún hefur vakið athygli fyrir nútímalegar og stílhreinar sýningar á nýjum erlendum leikritum. Nú tekst hún á við þetta stórvirki klassískra leikbókmennta.

Leikmyndarhönnuður er Finnur Arnar Arnarson, búningahönnuður er Filippía I. Elísdóttir, tónlist er eftir Barða Jóhannasson, lýsingu hannaði Halldór Örn Óskarsson og þýðingin er eftir Bjarna Jónsson, sem jafnframt er dramatúrg sýningarinnar.

Með hlutverk Heddu Gabler fer Ilmur Kristjánsdóttir en aðrir leikarar í sýningunni eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Eggert Þorleifsson, Harpa Arnardóttir,  Kristbjörg Kjeld, Stefán Hallur Stefánsson og Valur Freyr Einarsson.

{mos_fb_discuss:2}